Textakubbur

Heading For The F***ing Stars!

Red Power!

Endilega kvittið og svollis ;)

Auglýsing

Atburðarteljari

Atburðateljari

Undirleiti kubburinn

Bloggarar

Afdrifarík vika..

06. mars 2007 klukkan 23:55
Lag dagsins:
Anna Nalick - Wreck Of The Day


Jæja þá byrja ég enn og aftur að skrifa fjandans bloggið uppá nýtt.. Snillingnum tókst að stroka það allt út.. Bögg! Aaaarrrrght!

Allaveganna það hefur ófátt gerst á síðastliðnari viku.. Það byrjaði allt síðasta miðvikudag.. Þegar ég og ari skruppum til ömmu hans til að fixa eitthvað tæknitengt dót.. Þegar við vorum á milli 1 og 2 hæðar festist lyftan, mér til mikillar ánægju,
nú eða hitt og heldur.. :D Við vorum þarna í heilar fokking 45 mínútur, enda gerðist þetta á háannatíma, milli 4 og 5.. Jeij! Það má taka það fram að ég er með þvílíka innilokunarfælni og mér var ekki skemmt þegar að dyrnar fóru að opnast og maður sá
ekkert nema hæðina milli 1 og 2.. Pff.. Ég sæti núna á kleppi hefði ari ekki verið þarna.. Ég get svo svarið það..

Ooog ekki skánaði það á fimmtudaginn.. Þá tókst mér að bomba aftaná gömul hjón rétt hjá mjóddinni.. Ég var á leiðinni út úr bænum að sækja heklu á flugvöllinn þegar ég ætlaði að stoppa hjá Egó og taka bensín.. Það gerðist aldrei.. Bíllinn minn var dreginn í burtu.. enda ég algjörlega óviðræðuhæf af sjokki.. Það besta var samt að ég náði að snúa stýrinu svo að hornin fóru saman.. semsagt hægra hornið á þeirra og vinstra hornið á mínum.. Ég eyðilagði samt ekkert sem að kemur vélinni neitt sérstaklega við.. Ég beyglaði bara brettið til helvítis, húddið, braut ljós (en ekki peruna xD ), og sprengdi rúðupissgeysmluna, rúðuþurkan brotnaði líka af mín megin, but that was about it.. Mikið djöfullega er ég fegin.

Á föstudaginn fór ég í partei heim til Ásu gellz.. Hún varð 19 síðustu síðustu helgi.. Til hammó aftur :) Það var geðveikt gaman, ég bara gat ekkert djammað neitt svaðalega enda að fara að vinna klukkan 10 daginn eftir sem og að ég gerði.. Ég skelli myndunum inn bráðum ;)

Á laugardaginn hélt ég svo partei.. Eftir vinnu fór ég og sótti Heklu og Þórhildi og við fórum og gerðum okkur sætari, tókum til, skelltum okkur svo á American Style þar sem ég og hekla fengum okkur gras, semsagt kál, eða kjúklingasalat eins og það er kallað þarna.. Mér leið eins og kusu á beit sko.. Kræst!.. Mæli ekki með þessu blessaða salati :/
Eftir það skelltum við okkur heim.. Ég og Hekla fórum og pikkuðum upp Bettsy.. Á meðan byrjaði fólkið að mæta til mín..
Úff, það var geðveikt gaman og ég hendi inn myndunum mjög bráðum, ef ekki núna :)

Svo í gær, mánudaginn, skellti ég mér með Heklu í bíó eftir vinnu á "The Number 23".. Mér fannst Jim Carrey virkilega koma á óvart og leika þetta fáránlega vel.. Myndin var svosem ekkert alltof góð itself.. Mikið af dauðum köflum og í raun alltof mikið
af 12 + 11 eru 23 1 +2 + 20 er 23.. og öðru slíku.. Maður vissi ekki hvert hausinn ætlaði á tíma.. Þegar við fórum út og litum á klukkuna var hún 12:20 og ég og hekla grenjuðum af hlátri.. Enda eins og þeir sem hafa séð myndina vita þá þegar þeir fundu ekki lengur tölu með 23 var það 32.. og hvað eru 12 + 20 = 32.. Ha-ha-ha.. Alla leiðina heim vorum við obsessed af tölunni 23 og sáum hana allstaðar.. Fríkað hvað maður sér þetta þegar maður leitar :)

Anyways.. Tel þetta vera nóg í bili..

Það má þó taka eitt fram :D Fúsi elska náði að redda öllum hlutunum sem ég rústaði á bílnum mínum á 7 þúsund kall.. Ég er sko feitt sátt
Takk fúsi! ;)


'Cause love doesn't hurt so I know I'm not falling in love
I'm just falling to pieces

And if this is giving up then I'm giving up
If this is giving up then I'm giving up, giving up
On love, On love


Ari Nice skrifar ...
Þetta var nú samt góð vika þóað það urðu smá vesen með þessa lyftu og svo bílinn en það er allt að reddast :-D

En jám gegjuð partý sem við fórum í og þú varst með elskan ;-D Altaf gaman að djamma með þér ;-)
Samt hálf asnalegt að við sváfum í sófanum en ekki í rúminu þínu þarsem stelpunar sváfu hehehe :-D



Kv.
Kjellinn
07. mars 2007 klukkan 18:40
Þórhildur skrifar ...
 
Mér fannst það líka rosalega skrítið að þú vildir vera á svefsófanum með Ara og ég og Hekla í rúminu þínu...hvað varstu að pæla!!! En allavegana skemmti mér í partýinu. Ég vona að þú haldir annað partý bráðum.

Luv ya 2 death
Þórhildur

E.S. Á að gera eitthvað um helgina??? :P
15. mars 2007 klukkan 14:12

Skrifa athugasemd

Klukkan

Könnun

Hvernig fer reykingarbannið í þig?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...