Textakubbur

Heading For The F***ing Stars!

Red Power!

Endilega kvittið og svollis ;)

Auglýsing

Atburðarteljari

Atburðateljari

Undirleiti kubburinn

Bloggarar

And I know some people wanna criticize, makes 'em feel beter about themselves!..

22. mars 2007 klukkan 00:34
Lag dagsins:
Here To Stay - Christina Aguilera


Jæja.. loksins er virkilega farið að styttast í skólalokin.. var bara að átta mig á því þegar ég sá dagsetningarnar á prófunum.. Jibbí.. fokking.. jeij!.. Sjiii hvað ég get ekki beeeðið eftir að losna úr skólanum og komast í sumarfrí.. again :) Ég get svo svarið það að ég verð að stinga hausnum til útlanda í sumar.. annað gengur ekki.. það er að verða heilt ár síðan að ég fór út síðast.. pff.. Spurning að skella sér lengra suður þetta sumarið?.. Spán, Ítalíu
Anyone?..

Ég ætla að hætta að vinna á kassa, það er pæling að flytja sig annaðhvort inní afskorin blóm í garðheimum eða bara að hreinlega hætta.. er að fara í starfsprufu á föstudaginn.. Vonandi að maður fái bara já :)
Ég meina "I know I can be clumsy buuuut" Hehe...

Hvað haldiði að mér hafi annars tekist í dag? Jú! Ég skildi ljósin eftir á bílnum.. talandi um að drífa sig.. Það heyrist alltaf svona "íííííííííííííi-hljóð" ef maður opnar einhverja af fremri hurðunum.. og ég hef greinilega ekkert tekið eftir því, því að þegar að ég er sloppin úr skólanum og fer út er hann batteríislaus.. Oh great! =D Reddaðist samt alltsaman.. Ari og sveppi björguðu þessu seinna um daginn =) Thank Youuuu!

Allaveganna.. Þessi vika so far hefur verið gífurlega chilluð bara :) Ég get svo svarið það að hún hefur verið svo róleg að ég man varla hvað ég er búin að gera so far.. Úff, alzheimirinn strax farinn að kikka inn?..

Annars var síðasta helgi geeeeðveikt skemmtileg.. eða meira laugardagurinn..
Ég var heima hjá ara á föstudaginn.. Rotaðist reyndar óeðlilega snemma af þreytu.. enda var reyndar ekkert spes svo lengi sem ég var vakandi.. vaknaði aftur um 5.. Þá var stofan hálfpökkuð.. Komst að því að sígaretturnar mínar voru nærri því búnar.. URRR!.. Sko, það er ekki mest upplífgandi í heimi þegar maður vaknar og einhver er búin/nn að reykja hálfan pakka frá manni.. En það reddaðist reyndar allt saman :)

Svo á laugardaginn fór ég, birna og hjalti á tequila fyllerí.. Mikið djöfullega var gaman =D Drukkum 4 heila flösku af ferskjulíkjöri og svo stútuðum við 3 heilli tequila flösku.. eða svona að mestu leiti.. Var dansað fullt og svona.. Nema að nokkrir náðu dramapunktinum á fylleríinu.. *hóst* Ég er nú þar með talin Hehe :) Anyways.. Verst að fjandans myndavélin var batteríislaus, kannski meira eigandanum að kenna? ei?

Allaveganna.. er farin að henda inn myndum.. nú eða lesa dönsku?

Þar til seinna.. Bleeeehh

Well everybody got an opinion now don’t they
But it ain’t no thing to me
It really don’t make any difference now to me
If you don’t like what you see
I pay no mind to the negative kind
Cause that’s just no way to be
I don’t stop to please someone else’s needs
Gonna live my life for me

I’m gonna keep on I’m a do my own thing......

Afdrifarík vika..

06. mars 2007 klukkan 23:55
Lag dagsins:
Anna Nalick - Wreck Of The Day


Jæja þá byrja ég enn og aftur að skrifa fjandans bloggið uppá nýtt.. Snillingnum tókst að stroka það allt út.. Bögg! Aaaarrrrght!

Allaveganna það hefur ófátt gerst á síðastliðnari viku.. Það byrjaði allt síðasta miðvikudag.. Þegar ég og ari skruppum til ömmu hans til að fixa eitthvað tæknitengt dót.. Þegar við vorum á milli 1 og 2 hæðar festist lyftan, mér til mikillar ánægju,
nú eða hitt og heldur.. :D Við vorum þarna í heilar fokking 45 mínútur, enda gerðist þetta á háannatíma, milli 4 og 5.. Jeij! Það má taka það fram að ég er með þvílíka innilokunarfælni og mér var ekki skemmt þegar að dyrnar fóru að opnast og maður sá
ekkert nema hæðina milli 1 og 2.. Pff.. Ég sæti núna á kleppi hefði ari ekki verið þarna.. Ég get svo svarið það..

Ooog ekki skánaði það á fimmtudaginn.. Þá tókst mér að bomba aftaná gömul hjón rétt hjá mjóddinni.. Ég var á leiðinni út úr bænum að sækja heklu á flugvöllinn þegar ég ætlaði að stoppa hjá Egó og taka bensín.. Það gerðist aldrei.. Bíllinn minn var dreginn í burtu.. enda ég algjörlega óviðræðuhæf af sjokki.. Það besta var samt að ég náði að snúa stýrinu svo að hornin fóru saman.. semsagt hægra hornið á þeirra og vinstra hornið á mínum.. Ég eyðilagði samt ekkert sem að kemur vélinni neitt sérstaklega við.. Ég beyglaði bara brettið til helvítis, húddið, braut ljós (en ekki peruna xD ), og sprengdi rúðupissgeysmluna, rúðuþurkan brotnaði líka af mín megin, but that was about it.. Mikið djöfullega er ég fegin.

Á föstudaginn fór ég í partei heim til Ásu gellz.. Hún varð 19 síðustu síðustu helgi.. Til hammó aftur :) Það var geðveikt gaman, ég bara gat ekkert djammað neitt svaðalega enda að fara að vinna klukkan 10 daginn eftir sem og að ég gerði.. Ég skelli myndunum inn bráðum ;)

Á laugardaginn hélt ég svo partei.. Eftir vinnu fór ég og sótti Heklu og Þórhildi og við fórum og gerðum okkur sætari, tókum til, skelltum okkur svo á American Style þar sem ég og hekla fengum okkur gras, semsagt kál, eða kjúklingasalat eins og það er kallað þarna.. Mér leið eins og kusu á beit sko.. Kræst!.. Mæli ekki með þessu blessaða salati :/
Eftir það skelltum við okkur heim.. Ég og Hekla fórum og pikkuðum upp Bettsy.. Á meðan byrjaði fólkið að mæta til mín..
Úff, það var geðveikt gaman og ég hendi inn myndunum mjög bráðum, ef ekki núna :)

Svo í gær, mánudaginn, skellti ég mér með Heklu í bíó eftir vinnu á "The Number 23".. Mér fannst Jim Carrey virkilega koma á óvart og leika þetta fáránlega vel.. Myndin var svosem ekkert alltof góð itself.. Mikið af dauðum köflum og í raun alltof mikið
af 12 + 11 eru 23 1 +2 + 20 er 23.. og öðru slíku.. Maður vissi ekki hvert hausinn ætlaði á tíma.. Þegar við fórum út og litum á klukkuna var hún 12:20 og ég og hekla grenjuðum af hlátri.. Enda eins og þeir sem hafa séð myndina vita þá þegar þeir fundu ekki lengur tölu með 23 var það 32.. og hvað eru 12 + 20 = 32.. Ha-ha-ha.. Alla leiðina heim vorum við obsessed af tölunni 23 og sáum hana allstaðar.. Fríkað hvað maður sér þetta þegar maður leitar :)

Anyways.. Tel þetta vera nóg í bili..

Það má þó taka eitt fram :D Fúsi elska náði að redda öllum hlutunum sem ég rústaði á bílnum mínum á 7 þúsund kall.. Ég er sko feitt sátt
Takk fúsi! ;)


'Cause love doesn't hurt so I know I'm not falling in love
I'm just falling to pieces

And if this is giving up then I'm giving up
If this is giving up then I'm giving up, giving up
On love, On love


:D

28. febrúar 2007 klukkan 20:12
Lag dagsins:
Mika - Grace Kelly


Jæja, hvað segjir fólkið?
Anyways þá hefur nú eitthvað minna gerst hjá mér síðastliðna daga.. Mín er bara að hella sér yfir fokking skólabækurnar.. Þarf að lesa 2 bækur fyrir mánudaginn, já góðan daginn!.. Mér er ekki skemmt.. Er að lesa bókina Konungsbók í augnablikinu.. Gvuð minn góður.. Þvílíka hörmung man ég ekki eftir að hafa lesið lengi.. Boooooring.. Og svo er það danskan.. Jibbí fokking jeij.. Jú ókei danskan er alveg flott tungumál.. en skáldsaga á dönsku er ekki alveg mitt eftirlæti, ef ég á að segja eins og er..

Svo er Hekla nottla að koma á morgun :D Jeij! Mig hlakkar ógó mikið til.. Verst að ég játaði eins mikilli aukavinnu og ég gat yfir helgina svo við erum að tala um að ég verð að vinna næstu 6 daga eða svo.. Vúhú!..

Svo er það pæling að skella sér í partý til Ásu á föstudaginn og jafnvel halda eitt sjálf á laugardaginn.. Hver veit? Hver veit?.. =D

Anyways, I'm over and out..

Do I attract you?
Do I repulse you with my queasy smile?
Am I too dirty?
Am I too flirty?
Do I like what you like?

Klukkan

Könnun

Hvernig fer reykingarbannið í þig?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...