05. september 2006 klukkan 18:18
Lag dagsins:
Slow Down Baby - Christina Aguilera
Jæja það er loksins að maður kemst á internetið til að blogga um þessa helgi :) nú og svona það sem að á daga manns hefur drifið þetta mikla :P
Á föstudaginn var ég bara í skólanum.. og svo hitti ég Helgu Gyðu.. Við skruppum út að eta.. og í bíó þónokkruseinna.. Á me, you and dupree.. gosh.. Hún var alveg fyndin en ég gat ekkert hlegið af henni.. vorkenndi hinum 2 fyrir að vera með svona ógeðslega böggandi vin inná heimilinu.. Þeir sem að hafa ekki séð þessa mynd.. þá mæli ég ekki með henni ef að fólk vill emjast úr af hlátri í sætinu.. kannski er það bara ég en mér finnst bandarískar grínmyndir ekkert fyndnar.. :/ allaveganna nóg um það
Uu.. Svo á laugardaginn var farið að versla á Laugarveginum og Kringlunni :) Keypti mér bol, 2 geisladiska (nýjasta Aguilera og Lemar :D ) og svo ýmist dót sem að marr lifir ekki án.. t.d. brjóstahaldara og eye liner :P hehe.. Jæja Svo fórum við heim átum grillmat og gerðum okkur til fyrir ljósanótt.. :) Svo hittum við Fjölni og keyrðum þangað :) Ég réð yfirtónlistinni og var spiluð "hnakkatónlist" alla leiðina :D haha.. það er þó betra en trance, house og þetta.. ég er mjög sérstök á techno tónlist sumt af þessu er bara svo einhæft og mikið draaaaaasl..
Svo þegar að við komum var Sálin hans jóns míns að hætta.. vorum réttsvo komin niður á höfn þegar að flugeldasýningin var.. Jæja svo vorum við bara á röltinu að hitta fólk og svona :) Nokkru seinna koma 4 einkennisklæddar löggur uppað okkur og biðja um skilríki.. Ég er alltof hreinskilin það er greinilegt :P þar sem að ég sagðist bara vera 16.. að verða 17 eftir 4 daga hahaha.. Helga hefði líklega getað lamið hausnum í vegg.. enda var þetta frekar dull.. allaveganna ég var tekin inní eitthvað hús þar sem að ég þurfti að tala við einhverja kellingu og segja henni hvað ég héti og blablabla.. svo var hringt í mömmu og henni sagt að sækja mig.. GREIT!.. Ja.. Ég er ekkert alveg viss um að ég pósti hinni vitleysunni á netið.. orðum það bara þanneig að löggan í keflavík á líklega eftir að muna eftir mér í þónokkurn tíma þegar að það verður hugsað um þennan dag.. Jaaa..
Þanneig endaði sá dagur.. :P gaman af því.. eða ekki..
Sunnudaginn eyddi ég bara meygluð og þunn.. ég skil þetta ekki ég verð alltaf brjálæðislega þunn daginn eftir.. og það er ekki einu sinni tengt magni áfengisins.. :/ heppna fólk sem að verður ekki þunnt!!!! Um kvöldið hitti ég svo Fjölni..
Svo í gær hitti ég Bjarka.. Hengum bara hema hjá mér að spjalla :)
Jaaa! Svo á ég ammilli eftir 1 dag.. þ.e. Á MORGUN! :) Á reyndar slatta eftir í bílprófið er ekkert viss um að ég nenni að taka það áður en að ég á efni á bíl.. við erum að tala um eftir 2-3 mánuði :) Þetta kemur allt í ljós..
ja svo má alveg endilega tjá sig eikka hér :D.. heyrumst?